Mmm ég elska bananabrauð... eintómt, með smjöri, með smjöri og osti... aftur á bak og áfram.
Gallinn er bara sá að fólkið mitt elskar banana, svo það er sama hversu marga ég kaupi - þeir klárast alltaf áður en þeir verða nógu þroskaðir fyrir brauðgerð! Lykilatriðið er nefnilega að hafa bananana nógu and**i þroskaða, því þá verður brauðið best. Helst þarf hýðið að vera orðið vel freknótt eða jafnvel brúnt.
Svo það er alveg bannað að henda þroskuðum banönum... munið það ;o)
Uppskrift:
1 egg
1 dl sykur
1 dl púðursykur
3 litlir bananar, vel þroskaðir
5 dl hveiti
1 tsk salt
1/2 tsk matarsódi
1 dl sykur
1 dl púðursykur
3 litlir bananar, vel þroskaðir
5 dl hveiti
1 tsk salt
1/2 tsk matarsódi
- Stillið ofninná 180°C.
- Stappið bananana vel saman
- Þeytið egg og sykur vel
- Blandið banönum saman við (afar varlega)
- Blandið þurrefnum saman við (munið.. varlega, svo brauðið lyfti sér vel og verði létt í sér)
- Setjið í smurt aflangt form og bakið í 40 mínútur.
p.s. til tilbreytingar er voða gott að setja smá súkkulaðispæni út í.






