laugardagur, nóvember 05, 2011

Mexíkósk kjúklingasúpa

Þessi klassíska mexíkóska kjúklingasúpa hefur fyrir löngu fest sig í sessi hjá fjölskyldunni og hefur verið á boðstólum jafnt í veislum eða hversdeginum.

Hráefni
2 laukar, sneiddir
3 hvítlauksrif, smátt söxuð
1/2- 1 rautt  chilli, smátt saxað
1/2 tsk chili krydd
1/2 tsk cumin
1/2 tsk malað kóríander
4 kjúklingabringur, skornar í munnbita
3 dósir tómatar, maukað í blandara eftir smekk
7 dl kjúklingasoð
2 tsk Worchestershire sósa

Aðferð
Gljáið hvítlauk og lauk í smá olíu í stórum potti, bætið svo öllu út í súpuna nema kjúkling og látið malla nokkra stund, uþb 20 mínútur.
Bætið kjúklingnum út í og sjóðið í um 10 mínútur.(Sumir steikja kjúklinginn fyrst og bæta honum svo út í).
Smakkið til og bætið við kryddi eftir smekk.
Borið fram með e.t.v. nachos, rifnum osti, sýrðum rjóma og avocado.

p.s. vel má gera súpuna ódýrari með því að helminga kjúklinginn og setja 1 dós af kjúklingabaunum í staðinn!
Tilvalið er að nota kjúklingaafganga eða tilbúinn kjúkling í þennan rétt.