miðvikudagur, nóvember 03, 2010

Eru erfðabreytingar hættulegar?

Við vinkonurnar höfum skeggrætt erfðabreytingar að undanförnu. 
Ein úr hópnum prófaði hina íslensku undradropa EGF Bioeffect og var yfir sig hrifin.  En þeir eru einmitt unnir úr erfðabreyttu byggi, og það eru því margir frekar hræddir við að prófa það. 

Ég er að eðlisfari frekar hrædd við öll inngrip í náttúruna og forðast því allt sem er erfðabreytt eins og heitan eldinn.  Undradroparnir góðu verða bara að bíða :)

En ég fór að fræðast um þetta á veraldarvefnum og komst að því að það er ofsalega mikil framleiðsla í heiminum á erfðabreyttum matvælum!  Sérstaklega í ljósi þess að margar rannsóknir hafa sýnt neikvæðar niðurstöður og hversu óútreiknanleg áhrif þetta getur haft á náttúruna.