Það var svo góð tilfinning sem hríslaðist um mig í morgun, þegar ég hringdi í Víði til að segja honum að nú ættum við hverja einustu beyglu á bílnum okkar. Loksins! Loksins kláruðum við að greiða upp bílalánið!
Og við látum okkur sko ekki dreyma um að taka lán fyrir nýjum bíl, þvert á móti hljómar það eins og hin versta martröð... grínlaust.
Þetta er eitt stærsta skrefið sem við höfum náð í átt að markmiði okkar að skuldleysi (f.utan húsið) - nú stækkar skóflan okkar um 60 þúsund á mánuði, svo ég bind vonir við að hlutirnir fari að gerast hratt.
Skál fyrir því!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Vá til hamingju!!!
:)
Takk sys!
Sextíu þúsund krónur á mánuði eru ótrúlega miklir peningar. Við fjármögnuðum bílinn með erlendu láni -> tókum áhættuna þar sem höfuðstóllinn var ekki stór. En þrátt fyrir það fór afborgunin úr sirka 30þ upp í 60þ á engum tíma.
Til lukku!
Sendu inn athugasemd